blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

11.24.2004

My only reaction is over-reaction

Taktu tak á þer kona! Hvers vegna í fjandanum er ekki hægt að gera hlutina rólega? Eða annað.. sætta sig við að vera bara svona?? það er kanski frekar málið?? Hætta að andskotast yfir þvi að vera svona ofvirk og njóta þess bara? Ekki hollt? nei kanski ekki! Það er bara þegar mikið er að gerast í kringum mann og maður hefur of mikið að gera þá fer allt á milljón og hlutirnir eru massaðir hægri vinstri... svo fer maður að gleyma stund og stað.. og þvi sem maður er að gera, sennilega vegna þess að kerfið er að sjóða yfir! eða eitthvað! :) Róleg kona!!!!! ég var að gera tilboð í íbúð. Ætla mér að taka landvörðin(hinn helmingin af persónuninni) á þetta og massa hana svo hún verði fín.. Fæ að vita svarið fyrir 14 í dag þannig þetta er bara spennandi og stressvaldandi og skemmtilegt ;) Er að vonast til að gerast blokkar-nýbúi! Eitthvað sem mér hefur aldrei langað til að vera en ætla að láta mig hafa það í einhvern tíma fyrir dýrið mitt, svo hún geti trítlað sér til vina sinna og í skólan! Verð ég súri nýbúin? hata alla sem búa í blokkinni og ríf kjaft heima hjá mer um allt en mæti aldrei á húsfundi? líklegt ? já kanski! Já maður er óttalega undalegur...... en heldur allaf að maður sé dama! þannig við(landvörðurinn og ég) erum sátt!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home